9.11.2008 | 02:13
No mater if you're black or white!
Þvílík "kreppa" sem er búin að ríkja á þessu bloggi mínu! Ég hálf skammast mín fyrir að vera ekki búin að blogga í svona langann tíma... en nú mun þetta breytast!
Ég er búin að hugsa þetta blogg út því þetta er virkilega djúp hugsun núna hjá mér. Sko málið er að núna á síðustu og verstu tímum þarf að taka þessu öllu saman með gleði og hamingju og kanski leyfa sér að fíflast smá.... vera eins í hálfgerðum sirkus. Svo nú er spurningin, ef þú værir persóna í sirkus, hver værir þú?
Værir þú....
.... sirkusstjórinn!
Starf: Að hafa allt undir control og halda öllum góðum.
Útbúnaður: Sirkusstjórinn er oftast vel til hafður með pípuhatt og staf og kanski stórt gjallarhorn, til þess að ná athygli allra. Kvenkyns sirkusstjórar eru oftast í drögtum.
Lifnaðarhættir: Lifir í vellistingum. Á stæðsta húsið og flottasta bílinn.
Hvar má finna sirkusstjóra: Yfirrmaður þinn í vinnunni getur vel verið sirkusstjóri. Sirkusstjóra má finna um borð í einnkaþotu, á Argentínu Steikhús í hádeiginu, í Alþingishúsinu og á fleiri svona stöðum.
Helstu kostir: Ákveðinn og áreiðanlegur. Vel mælandi.
Helstu gallar: Vegna veigamikills hlutverks eiga þeir til með að klúðra og þá geta þeir vel verið kallaðir eftirfarandi nöfnum: fæðingarhálfviti, erkifífl, móðurserðir, bjáni og asni.
Frægir Sirkusstjórar: Davíð Oddson, Vigdís Finnbogadóttir, Hillary Clinton, Ingibjörg Sólrún, Björn Bjarnason og Geir H. Haarde.
.... trúðurinn!
Starf: Vera öðrum til skemmtunar. Vera með fíflalæti og láta eins og bjánar.
Útbúnaður: Rautt nef, stórir skór og litríkur klæðnaður.
Lifnaðarhættir: Einfalt og þægilegt... ekkert of flókið. Trúðurinn sætti sig við það sem hann á. Sumir trúðar hafa reyndar öðlast mikinn pening út á fíflalæti sín og lifa þá aðeins hærra.
Hvar má finna trúð: Í Hollywood og í miðbæ Reykjavíkur.
Helstu kostir: Trúðar eru skemmtilegir og fyndnir.
Helstu gallar: Trúðar geta stundum farið yfir strikið og orðið skelfilegir. Aldrei skal taka trúða alvarlega.... ALDREI!
Frægir trúðar: Robin Williams, Adam Sandler, Brittney Spears, Óttar Proppé, Laddi og Ómar Ragnarson.
.... eldgleypirinn!
Starf: Hætta lífi sínu til þess að gleðja aðra.
Útbúnaður: Eitthvað stórhættulegt.
Lifnaðarhættir: Að lifa alveg á brúninni... dagur án lífshættu er dagur án ánægju.
Hvar má finna eldgleypir: Hangandi í teygju, í krakkhúsi, á body piersing ráðstefnu, á íþróttaleikfangi.
Helstu kostir: Eru oftar en ekki íþróttalega vaxnir og í feikna formi. Getur verið skrautlegt að þekkja allavega einn eldgleypi.
Helstu gallar: Eru frekar ýktir. Aldrei verða mikið náinn eldgleypi, þú getur ekki treyst á að hann verði lengi til staðar.
Frægir eldgleypar: Arne Arhus, Fernandi Alonso, Keith Ritchard, Amy Winehouse og David Blane.
.... konan með skeggið!
Starf: Bara að vera þarna, vera sýnileg og skapa umtal. Sumar konum með skegg kjósa það að giftast eitthverjum gömlum ríkum kalli.... en ekki allar.
Útbúnaður: Eitthvað sem hneykslar.
Lifnaðarhættir: Konan með skeggið lifir oft ágætis lífi og hefur flottar tekjur af því sem hún gerir eða gerir ekki.
Hvar má finna konuna með skeggið: Á flottur skemmtistöðum, í Séð og Heyrt, á Flugstöð Leifs Eiríkssonar af fara eitthver á framandi og seiðandi stað, í sjónvarpinu eða í meðferð.
Helstu kostir: Á böns af peningum og er ekki feimin við að flagga þeim og eyða. Er veraldarvön. Er ágæt vinkona í skamman tíma. Eru skrautlegar.
Helstu gallar: Konurnar með skeggið fara oft yfir strikið. Algengt er með konur með skegg að þær komast í kast við lögin eða ánetjast eitthverju ávanabindandi.
Frægar konur með skegg: Paris Hilton, Anna Nichole Smith, Fjölnir Þorgeirsson, Geir Ólafsson, Ásdís Rán, Victoria Beckham og hjónakornin Peter Andrew og Jordan.
.... ljónatemjarinn!
Starf: Að vera áberandi fyrir hetjudáð og hugrekki.
Útbúnaður: Ljónatemjara þurfa ekki neitt sérstakt, nema kanski sinn ótæmandi viskubrunn og slatta af almennri skynsemi.
Lifnaðarhættir: Eitthvað einfalt og þægilegt.
Hvar má finna ljónatemjara: á kaffihúsum, í helli eitthverstaðar í óbyggðum, í tjaldi, í klaustri eða í flottum háskóla út í heimi.
Helstu kostir: Hugrekki, hetjudáð, viska, þolinmæði og þrautsegja.
Helstu gallar: Ljónatemjarar geta verið sérstakir og fráhrindandi við fyrstu kynni, svolítið kaldir. Ljónatemjarar eru stundum einum of djúpir svo það verður kjánalegt. Sérvitrir.
Frægir ljónatemjarar: Ghandi, Oprah, John Lennon, Helgi mótmælandi Íslands, Björk, Martin Luther King og Mandela.
Svo nú er spurninginn, tilheyrið þið eitthverjum af þessum sirkustýpum?
Athugasemdir
Án nokkurns vafa er ég dýratemjari, í þessu tilviki ljónatemjari. Mér nægir dýrið, ég þarf ekki meira, af þeim sökum verður ljónatemjarinn sérvitur, fráhrindandi og svolítið kuldalegur í viðmóti þó það sé kannski ekki alveg rétta andlit hans.
Rúna Guðfinnsdóttir, 9.11.2008 kl. 12:57
jæja hensla,mín bara nokkuð djúp.....ég hef alltaf haldið að ég væri trúðurinn.má ég kanski vera línudansarinn,sú sem reddar öllu og lætur redda sér.
Árný Sigurðardóttir, 9.11.2008 kl. 15:53
Það eru fáir cirkusar í henni veröld,ekki amalegt að litla frón skuli eiga einn. Amma stína.
Árný Sigurðardóttir, 9.11.2008 kl. 16:27
Kræst, ljónatemjari slash konan með skeggið slash trúður......ARGH....ég er "multiple personality" big tæm.
Sjíss...farinn til sálfræðings!
Sigríður Sigurðardóttir, 10.11.2008 kl. 23:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.