Hamagangur á Hóli!

Unglingsdóttir mín fór á skrall í nótt. Hún, sem var búin að haga sér svo vel öll jólin, hefur fundið angan af áramótunum og ekki getað staðist freistinguna. Hún var eitthvað tens í gærkvöldi og við héldum að hún vildi kanski bara fara út að pissa en svo skilaði hún sér ekki heim fyrr en rétt undir morgun. Þá kom hún heim með hrikalegum látum, búin að týna ólinni sinni (semsagt nakin) og með fress í eftirdragi. Heimilisfaðirnn leyst ekki á blikuna og óð út á nærfötunum til þess að stoppa hamaganginn og losa læðuna við "hözl" næturinnar. En ekki var það nóg því unglingsdótturinni leyst ekki á að enda kvöldið strax svo hún óð aftur út í nóttina á eftir fressinu. Svo þegar ég rumskaði, blind af augnsýkingu, og spurði heimilisfaðirinn hvaða óhljóð væru í gangi og hvar unglingsdóttirin væri sagði hann kæurleysislega:

"Hún er að láta barna sig!"

Ég hrissti bara höfuðið og tilkynnti að ég væri ekki tilbúin að fara að ala upp ungliðasveit af æstum kettlingum núna í kreppunni og ef þetta væri satt mætti hann sjá um þetta. Við færum bara fram á umönnunarbætur frá pabbanum og semjum um pabbahelgar!

Nú liggur unglingsdóttirin inn í rúmi, líklegast með timburmenni, og ég sýni henni enga vorkunn... þetta var hennar val!

Ave

Henný 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband