19.3.2008 | 06:17
Lets get physical, physical!
Nú er ástand!
Þvílíkt og annað eins ástand og vitleysa!
Ég svitna eins og Pavarotti og er móð eins og versti asmasjúklingur!
Nú er nóg komið, þetta er orðið ógeðslegt!
Samkvæmt nýjustu greiningu minni fann ég út að ég er í einu versta líkamlega formi sem ég hef á ævi minni verið í. Ég hef sama sem ekkert þol og svitna og verð móð við minnsta átak! Ég get ekki einu sinni tekið "pissurúntinn" í vinnunni án þess að taka mér pásu! Samt er ég ekkert með eitthverja svona "extra keppi", langt frá því... fékk nóg af þeim hérna áramótin 2006-2007 þegar ég breyttist í eitt stórt "extra keppa" safn, læt það ekki gerast aftur! Nú er það bara formið og þolið.
Nú er nóg komið, ég ætla að gera eitthvað í málinu...
Ave
Henný
(sem er farin út að hlaupa og sippa.)
Athugasemdir
Let's get physical....Olivia Newton John, svooooooo mikið "eighties" að ég kikna í hnjánum! STRANGLEGA bannað með öllu að ná sér í astmaskít. Nóg að ég sé "lafmóð" í familíunni.
Sigríður Sigurðardóttir, 19.3.2008 kl. 20:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.